Ávöxtun lífeyrisssjóðs norska ríkisins, sem jafnan er nefndur olíusjóðurinn, nam 9,6% á síðasta ár. Er þetta fimmta besta rekstarár sjóðsins en í hann rennur stærstu hluti þeirra tekna, sem norska ríkið hefur af olíu- og gasvinnslu.
Eignir sjóðsins voru metnar á 3077 milljarða norskra króna og jukust um 437 milljarða norskra króna, jafnvirði rúmlega 8900 milljarða íslenskra króna.
„Þetta er góð niðurstaða," sagði Øystein Olsen, nýr seðlabankastjóri Noregs, á blaðamannafundi í dag.
Olíusjóðurinn á hlutabréf í 8496 fyrirtækjum um allan heim og er stærsti einstaki fjárfestirinn á evrópskum hlutabréfamarkaði. Ávöxtun hlutabréfa í eigu sjóðsins var 13% á síðasta ári og var mestur gróðinn á bréfum í Nesle, Apple og Shell. Sjóðurinn tapaði hins vegar á bréfum í spænskum bönkum og breska olíufélaginu BP.
Í lok síðasta árs voru 5,2% af eignum sjóðsins í ávöxtun í Japan en hlutabréfamarkaður þar í landi hefur hrunið í kjölfar náttúruhamfaranna sem þar urðu fyrir viku.