Hagnaður Eimskips eftir skatta var 2 milljarðar króna á síðasta ári. Á síðasta fjórðungi ársins var hagnaður 457 milljónir króna samanborið við 372 milljónir árið 2009.
Gylfi Sigfússon, forstjóri, segir í tilkynningu, að rekstrarmarkmið félagsins hafi náðst á þessu fyrsta heila rekstrarári frá endurskipulagningu og félagið hafi skila ðhagnaði á öllum ársfjórðungum frá endurreisn.
Það sem helst valdi áhyggjum sé að flutningamagn í áætlana flutningum vaxi ekki á milli áranna 2009 og 2010 og hafi raunar dregist saman á síðustu mánuðum ársins 2010 og í byrjun árs 2011.