321 milljón kr. hagnaður hjá HS Veitum

mbl.is

HS Veitur hf., sem er að 66,7% hluta í eigu Reykjanesbæjar, skilaði 321 milljón króna hagnaði á árinu 2010. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 920 milljónum króna. Rekstrartekjur fyrirtækisins á árinu 2010 námu 4,2 milljörðum kr. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Árni Sigfússon, stjórnarformaður HS Veitna hf., sagði á aðalfundi félagsins, sem var haldinn í Stapa í gær, að í ljósi sterkrar lausafjárstöðu hefði stjórn félagsins  ákveðið að greiða niður skuldir félagsins, umfram lánaskilmála, að upphæð 900 milljónir króna, og lækka þannig heildarskuldir um 15%. Eigið fé HS Veitna hf. nemur 8,7 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall er 53%, segir í tilkynningu.

HS Veitur hf eiga kaldavatnslindir í Svartsengi og selja heitt og kalt vatn til allra heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Auk þess sér fyrirtækið um dreifingu á raforku á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Álftanesi, Árborg og Vestmannaeyjum og hluta Garðabæjar.

Auk Reykjanesbæjar á Orkuveitan 16,6% hlut í fyrirtækinu og Hafnarfjörður 15,4% .

Á aðalfundinum var ný stjórn kjörin en í henni sitja.

Frá Reykjanesbæ: Böðvar Jónsson (formaður), Árni Sigfússon (varaformaður), Magnea Guðmundsdóttir (ritari), Guðný Kristjánsdóttir og Friðjón Einarsson.

Frá Hafnarfirði: Eyjólfur Sæmundsson.

Frá Orkuveitu Reykjavíkur: Páll Erland.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK