Árslaun Steinþórs Skúlasonar, forstjóra SS, námu 22,8 milljónum króna á síðasta ári, 1,9 milljónum króna á mánuði, að því er kemur fram í ársskýrslu fyrirtækisins.
Þá námu árslaun þriggja forstöðumanna megindeilda Sláturfélagsins og Reykjagarðs 43,6 milljónum króna samtals.
Laun Hallfreðs Vilhjálmssonar, stjórnarformanns SS, námu rúmri milljón króna á síðasta ári og aðrir stjórnarmenn fengu á bilinu 523 þúsund til 591 þúsund krónur.