Tæpar 22 milljónir í árslaun

Árslaun Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja, námu tæplega 22 milljónum króna á síðasta ári, eða sem svarar til 1,83 milljónum króna á mánuði.

Fram kemur í ársskýrslu félagsins, að árslaun Kristins Þórs Geirssonar, aðstoðarforstjóra, námu rúmum 15,7 milljónum, árslaun Friðriks Þórs Snorrasonar, framkvæmdastjóra Skyggnis, námu 12 milljónum og laun Henriks R. Möllers, framkvæmdastjóra Applicon, rúmum 28 milljónum króna. 

Laun Benedikts Jóhannssonar, stjórnarformanns, námu 2,55 milljónum á síðasta ári en stjórnarmenn fengu 850 þúsund krónur.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK