Skuldatryggingaálag óbreytt

Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur lítið haggast það sem af er …
Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur lítið haggast það sem af er degi. Ernir Eyjólfsson

Fimm ára skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur lítið hreyfst eftir að markaðir opnuðu á meginlandinu í morgun. Álagið stóð í 233 punktum um ellefuleytið í morgun.

Til samanburðar stóð skuldatryggingaálag gríska ríkisins í 996 punktum, Portúgals í 539 punktum og Írlands í 510 punktum. Skuldatryggingaálag Spánar, eins stærsta hagkerfis evrusvæðisins, er litlu lægra en Íslands og stóð í 197 punktum í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK