Hagnaður hjá Verði

Rekstur Varðar trygginga skilaði 223 milljóna hagnaði árið 2010. Á síðasta ári var hagnaður af rekstrinum 181 milljón króna.

Heildartekjur Varðar jukust jafnframt milli ára, voru 4,1 milljarður króna í fyrra, en um 3,7 milljarðar króna árið áður. Heildargjöld jukust úr 3,6 milljörðum árið 2009 í 3,9 milljarða á síðasta ári. 

Eigin iðgjöld jukust um 8% og voru 3470 milljónir í fyrra samanborið við 3225 milljónir króna árið 2009. Fjárfestingatekjur Varðar jukust um 27% milli ára og voru 615 milljónir króna árið 2010. Eiginfjárhlutfall Varðar var 22,6% á síðasta ári og arðsemi eiginfjár 15,8%. Gjaldþol Varðar var 1,94 á síðasta ári en var 1,72 í árslok 2009.
 
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK