Kerfisvilla hefur komið í ljós við innlestur á launagögnum í vísitölu byggingarkostnaðar, sem haft hefur í för með sér uppsafnað vanmat í vísitölunni frá mars 2010.
Segir Hagstofan, að gildi vísitölu byggingarkostnaðar sé í dag metið rúmum 4% lægra en það ætti að vera.
Hagstofan vinnur nú að endurútreikningi og verða niðurstöður birtar
20. apríl næstkomandi samhliða útgáfu vísitölu byggingarkostnaðar með
gildistíma í maí 2011. Hækkun vegna áhrifa leiðréttingarinnar mun að
fullu koma fram í vísitölugildi með gildistíma í maí 2011.