Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins er nú hið lægsta frá hruni, eða 216 punktar.
Hefur skuldatryggingaálagið lækkað um 10% frá því fyrir helgi. Á sama tíma hækkar skuldatryggingaálag Grikklands, Portúgal, Írland og Spán.
Álag Grikklands er nú aftur komið yfir 10%, og var 1030 punktar í morgun. Álag Portúgals var 562 punktar í morgun, álag Írlands 531 punktar og Spánar 214 punktar.