Miklar hækkanir urðu í bandarísku kauphöllinni í dag. Nýjar tölur um rekstrarafkomu fyrirtækja reyndust betri en sérfræðingar á Wall Street höfðu reiknað með og þá bárust jafnframt jákvæð tíðindi af húsnæðismarkaðinum.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,53% og er nú 12.454,45 stig. Nasdaq hækkaði um 2,09% og er 2.802,40 stig. S&P 500 hækkaði um 1,35% og stendur nú í 1.330,38 stigum.