Ríkasta fólkið í Bretlandi varð enn ríkara á síðasta ári en áður. Samkvæmt árlegri samantekt blaðsins Sunday Times námu eignir þúsund ríkustu einstaklinganna í Bretlandi 395,8 milljörðum punda, 73.600 milljörðum króna og jukust um 18% milli ára.
Fjölskylda stálkóngsins Lakshmi Mittal er sú ríkasta í Bretlandi og á 17,5 milljarða punda en það er 22% samdráttur frá árinu 2009, aðallega vegna þess að gengi hlutabréfa í fyrirtækinu ArcelorMittal lækkaði.
Rússinn Alisher Usmanov, sem komst í fréttirnar hér á landi nýlega þegar fram kom að Kaupþing ætlaði að veita honum lán skömmu fyrir fjármálahrun, er næstríkastur og hækkar um sex sæti milli ára. Hann er talinn eiga 12,4 milljarða punda og eignir hans jukust um 7,7 milljarða punda á síðasta ári.
Í fyrsta skipti eru konur á listanum fleiri en 100 til til að komast á listann þurfti að minnsta kosti 70 milljóna punda eignir. Í fyrra komust þeir, sem áttu 63 milljónir eða meira á listann yfir 1000 ríkustu Bretana.
Alls eru milljarðamæringar 73 þetta ári en í fyrra áttu 53 meira en einn milljarð punda.
Ríkasta fólk Bretlandseyja: