lþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn gríska ríkisins vegna ríkisskuldabréfa og eru grísk ríkisskuldabréf nú komin langt niður í svonefndan ruslflokk hjá fyrirtækinu.
Einkunn fyrir langtímaskuldbindingar er lækkuð úr BB- í B og úr B í C fyrir skammtímaskuldbindingar.