Bandarískur kaupsýslumaður, sem er kvæntur íslenskri konu, bauðst haustið 2009 til að leggja fram landsvæði í Kólumbíu til gullleitar gegn því að íslenskir fjárfestar legðu fram 1,1 milljarð kr. til kaupa á tækjum.
Í umfjöllun um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir, að ætlunin með þessu hafi verið að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans.
Höfðu þingmennirnir Tryggvi Þór Herbertsson og Jón Gunnarsson forgöngu um að koma á fundum með fjárfestum. Fallið var frá verkefninu í fyrra.