Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir að segir að tekin hafi verið ákvörðun að jafna kynjahlutföll við stjórn bankans og í dótturfélögum hans. Steinþór segir að til þess að ná árangri við jöfnun kynjahlutfalla þurfi að taka ákvörðun um slíkt og láta svo til skarar skríða.
Steinþór hélt erindi á ráðstefnunni Virkjum karla og konur til athafna sem Félag kvenna í atvinnurekstri heldur. Steinþór segir að lítill launamunur sé á milli karla og kvenna í stjórnenda og millistjórnendastöðum en hinsvegar þurfi að gera betur til þess að jafna kynjahlutföll í stöðugildum.