Hagnaður Magma eykst

Ross Beaty, forstjóri Alterra Power Corp, áður Magma Energy.
Ross Beaty, forstjóri Alterra Power Corp, áður Magma Energy.

Hagnaður kanadíska orkufélagsins Magma Energy, móðurfélags HS Orku, nam 9 milljónum dala, um milljarði króna, á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 142 þúsund dali á sama tímabili í fyrra.

Tekjur félagsins  námu 18,7 milljónum dala á tímabilinu, sem er þriðji fjórðungur fjárhagsárs Magma, samanborið við 1,3 milljónir dala á sama tíma í fyrra. 

Kanadísku orkufélögin Magma Energy og Plutonic Power Corporation skrifuðu nýlega undir samrunasamning. Hefur samrunasamningurinn nú tekið gildi, eftir að hæstiréttur Bresku Kólumbíu staðfesti hann, og heitir sameinað fyrirtæki Alterra Power Corp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK