Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram á fundi borgarstjórnar í dag. Þar kemur fram að afkoma borgarsjóðs var mun betri á síðasta ári en áætlanir gerðu ráð fyrir. Er rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B- hluta, jákvæð um 13.671 milljónir króna.
Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs, sem hefur með hinn almenna rekstur borgarinnar að gera, var jákvæð um 803 milljónir en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 2369 mkr. Segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, að þetta skýrist einkum af því að skatttekjur voru umfram áætlun, gjaldfærsla vegna breytingar lífeyrisskuldbindingar og húsaleigubætur voru undir áætlun og fagsviðin héldu sig innan fjárheimilda að mestu þrátt fyrir þungar hagræðingarkröfur.
Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs var jákvæð um 670 milljónir en áætlun gerði ráð fyrir 2264 milljóna króna hagnaði. Frávikið skýrist einkum af niðurfærslu krafna að fjárhæð 1147 milljónir króna og breyttum reikningsskilaaðferðum vegna leiguskuldbindinga sem ekki var áætlað fyrir. Viðbótargjaldfærslur vegna þeirra nema 420 milljónir.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, sem er sameiginleg niðurstaða fyrir Aðalsjóð og Eignasjóð, var því jákvæð um 1472 milljónir króna en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 105 milljónir. Niðurstaðan er því 1.577 milljónum betri en gert var ráð fyrir.
Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 218 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1855 milljónir. Niðurstaðan var því 1637 milljónum betri en áætlun gerði ráð fyrir.
Í tilkynningu segir, að góða afkomu A-hluta megi einkum rekja til hærri útsvarstekna en áætlaðar voru sem skýrist af meiri launahækkunum og áhrifum úttektar á séreignarsparnaði.
Þá hafi tekjur af fasteignagjöldum verið vanáætlaðar um rúmlega 800 milljónir þar sem álagningarstofn lá ekki fyrir við gerð áætlunar. Rekstrarútgjöld reyndust hins vegar um 1100 milljónum hærri en áætlað var.
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 13.671 milljónir árið 2010 en árið 2009 var hún neikvæð um 1650 milljónir.
Segir Reykjavíkurborg, að þessi viðsnúningur skýrist einkum af auknum tekjum A-hluta og gengishagnaði í samstæðunni. Fjármagnsliður var neikvæður um 12.655 milljónir árið 2009 en var nú jákvæður um 10.505 milljónir.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar jókst úr 26,4% árið 2009 í 30,8% árið 2010. Skuldsetningarhlutfall lækkaði úr 239% árið 2009 í 191% árið 2010.