Lánshæfi Landsvirkjunar lækkar

Landsvirkjun - lánshæfi versnar.
Landsvirkjun - lánshæfi versnar. Ómar Óskarsson

Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr BB+ í BB. Er þetta gert í kjölfar þess að lánshæfi ríkissjóðs í innlendri mynt var lækkað í gær. Horfur er áfram neikvæðar, að mati matsfyrirtækisins. Horfurnar eru neikvæðar hjá báðum aðilum, segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Skuldabréf fyrirtækisins eru því ennþá í ruslflokki.

„Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar tekur mið af breytingum á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs. [...}  Á sama tíma voru lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar teknar af athugunarlista og eru áfram með neikvæðum horfum sem fyrr,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

„Að mati Landsvirkjunar hefur þessi breyting ekki í för með sér áhrif á núverandi skuldbindingar fyrirtækisins. Rekstur Landsvirkjunar er stöðugur og allar helstu kennitölur og sjóðstreymi hafa batnað á undanförnum mánuðum,“ segir fyrirtækið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK