Landssamtök lífeyrissjóða áætla að vegið meðaltal
nafnávöxtunar lífeyrissjóðanna hafi verið um 5,1% á árinu 2010 en
verðbólga á sama tímabili var 2,6%. Að meðaltali var hrein raunávöxtun
því 2,5% á árinu 2010. Þetta kom fram á aðalfundi samtakanna. Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður LL, sagði í
skýrslu stjórnar að raunávöxtun lífeyrissjóðanna árið 2010 hefði
eðlilega verið nokkuð misjöfn, allt eftir samsetningu og ávöxtun
eignaflokka. Í heildina megi greina mikla breytingu til batnaðar frá
„hrunárinu“ 2008 þegar raunávöxtun lífeyrissjóða var neikvæð um 21,8% en hins vegar jákvæð um tæplega 0,4% árið 2009.
Fram kemur á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða að til að lífeyrissjóðir geti staðið undir lífeyrisskuldbindingum sínum
þurfi árleg langtímaávöxtun þeirra að nema 3,5% umfram innlenda
verðbólgu. Afkoma síðustu fimm ára er langt undir þeirri viðmiðun og
munar þar mest um mjög neikvæða afkomu árið 2008. Fimm ára meðaltal
raunávöxtunar sjóðanna 2006-2010 var neikvætt um 2,4% en 10 ára meðaltal
áranna 2001-2010 var aftur á móti jákvætt um 1,6%.
„Áföllin eftir bankahrunið leiddu til þess að nokkrir lífeyrissjóðir urðu að lækka lífeyrissréttindi og skerða lífeyrisgreiðslur. Þessir sömu sjóðir höfðu aukið réttindi sjóðfélaga umfram hækkun vísitölu þegar ávöxtun var hvað hæst á árunum 2003 til 2006.
Arnar Sigurmundsson sagði á aðalfundinum að frá september 2008 hefði vísitala fyrir lífeyrisgreiðslur sjóðanna hækkað um 18% en launavísitala hækkað um tæplega 10% á sama tímabili.
Umfjöllun um þörfina á 3,5% raunávöxtun lífeyrissjóðanna væri á tíðum villandi og oft sett í beint samhengi við raunávöxtun á innlendum skuldabréfum lífeyrissjóðanna. Og Arnar bætti við:
„Um er að ræða meðalraunávöxtun og getur ávöxtun ýmist verið meiri eða minni á einstökum eignaflokkum. Engu að síður er ljóst að erfitt getur verið að ná langtíma 3,5% meðalraunávöxtun á eignir sjóðanna. Sveiflur í efnahagslífinu og fjármálakreppur með falli í ávöxtun, samhliða eignarýrnun, dregur niður meðaltalið hvort sem miðað er við 5 eða 10 ár,“ segir í frétt frá Landssamtökum lífeyrissjóða.