Ekkert ríki í heiminum er með lægri lánshæfiseinkunn en Grikkland eftir að Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfismat gríska ríkissjóðsins um þrjá punkta niður í CCC.
S&P segir auknar líkur á því að gríska ríkið geti ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.