Litið til lengri tíma á
Ísland að taka upp evruna að mati OECD. Ísland er með minnstu sjálfstæðu
flotmynt í heiminum. Önnur smáríki eru annað hvort ekki með sína eigin
mynt eða með fastgengi.
Segir stofnunin að upptaka evrunnar muni draga verulega úr sveiflum í verði innfluttrar vöru og þjónustu og draga almennt úr sveiflum í verðbólgunni þar sem um helmingur af utanríkisviðskiptum Íslendinga er við ríki sem eru með evruna eða hafa fest gengi myntar sinnar við evruna, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Lægra verðbólguálag og ekkert áhættuálag í gjaldeyrisviðskiptum við evrusvæðið ætti að lækka innlenda raunvexti, bæta nýtingu fjármagns og auka framleiðni en á því sviði hefur Ísland verið eftirbátur flestra annarra OECD ríkja á undanförnum árum.
Kostnaðurinn við að missa gengissveigjanleikann ætti að vera
takmarkaður þar sem Ísland er með mjög sveigjanlegan vinnumarkað þó að
leiðrétting raungengisins í gegnum vinnumarkaðinn sé seinfarnari leið en
í gegnum gjaldeyrismarkaðinn og hugsanlega einnig kostnaðarsamari," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.