Vandi Orkuveitunnar er fjárhagslegur og til að mæta honum ætlar fyrirtækið að grípa til aðgerða, sem eiga að bæta rekstrarstöðuna um fimmtíu milljarða á næstu fimm árum, að sögn Bjarna Bjarnasonar, forstjóra. Þar á meðal er mikill samdráttur í fjárfestingu, lækkun rekstrarkostnaðar, fækkun starfsfólks og sala eigna. Þá munu tekjur aukast með gjaldskrárhækkunum. Ársfundur OR var haldinn í dag.