Kaup SF1 á meirihluta í Sjóvá (Sjóvá-Almennum tryggingum hf) hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlits, Samkeppniseftirlits og stjórnar ESÍ (Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf).
Kaupin eru því lögformlega frágengin og ný stjórn verður formlega skipuð á næsta hluthafafundi félagsins, að því er segir í tilkynningu. Fulltrúar SF1 í stjórn Sjóvá verða Ingi Jóhann Guðmundsson, Tómas Kristjánsson og Erna Gísladóttir, sem mun verða formaður nýrrar stjórnar.