Skiptastjóri þrotabús Fons hefur ákveðið að krefja fyrrverandi
stjórnarmenn Fons um þrjá milljarða króna í skaðabætur vegna milljarða
láns Fons til huldufélagsins Pace Associates frá Panama. Hann hefur enn
engar upplýsingar fengið um afdrif peninganna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Hinn 24. apríl
2007 voru millifærðir þrír milljarðar króna af reikningi Fons á Íslandi á
reikning félagsins Pace Associates Corp. hjá Landsbankanum í Lúxemborg,
en Pace er skráð í Panama. Sex dögum síðar, hinn 30. apríl var gerður
lánasamningur milli Pace og Fons þar sem lánið er fært til bókar og það
afskrifað samdægurs í bókhaldi Fons.
Óskar Sigurðsson,
hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri þrotabús Fons, hefur í á annað ár
verið að reyna að komast að því hvað varð um þessa peninga. Landsbankinn
í Lúxemborg vill ekki veita þrotabúinu upplýsingar, hvorki um félagið
né um hvernig þessum peningum var ráðstafað af Pace með vísan til
bankaleyndar.
Gjalddaginn á láninu var 30. apríl 2010 og sendi
skiptastjórinn bréf á heimilisfang Pace Associates og gerði kröfu um
greiðslu. Engin greiðsla barst og nú hefur skiptastjórinn krafið
þáverandi stjórnarmenn í Fons um greiðslu skaðabóta vegna þess tjóns sem
þeir kunna að hafa valdið Fons með lánveitingunni en lánið var veitt án
trygginga.
Hefur hann sent þeim bréf þess efnis, en um er að ræða þá
Pálma Haraldsson, Jóhannes Kristinsson og Einar Þór Sverrisson, lögmann.
Þeir eru krafðir sameiginlega um þrjá milljarða króna með vöxtum.
Jóhannes var meðfjárfestir Pálma í Fons, en hann er einnig umsvifamikill
í landbúnaði hér á landi sem og fjárfestingum í Lúxemborg.
Pálmi
Haraldsson gaf þær skýringar í skýrslutöku hjá Óskari Sigurðssyni
skiptastjóra að lánið til Pace, sem hafi verið vogunarsjóður, hafi átt
að nota til að kaupa lóðir undir fasteignaverkefni á Indlandi. Ekki
liggur fyrir hvort ráðist hafi verið í þessar fjárfestingar, samkvæmt frétt Stöðvar 2.