Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í rafrænum viðskiptum í Asíu í nótt vegna ótta um að nýtt samdráttarskeið sé hafið á hrávörumarkaði.
Í New York lækkaði verð á hráolíu til afhendingar í ágúst um 16 sent og er 97,27 dalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 39 sent og er 117,36 dalir tunnan.