Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir, að sú ákvörðun alþjóðlega matsfyrirtækisins Moody's að lækka lánshæfismat írska ríkisins í ruslflokk sé óskiljanleg.
„Ákvörðun Moody's í gær að lækka lánshæfiseinkunn Írlands er óskiljanleg," sagði Pia Ahrenkilde Hansen, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, á blaðamannafundi í Brussel í dag.