Helstu bankar Spánar og Ítalíu komu best út í álagsprófi evrópskra bankayfirvalda sem kynnt var á föstudag. Er þetta talið geta komið þeim til góða varðandi frekari fjármögnun. Greint er frá þessu á vef Financial Times í kvöld.
Átta bankar af níutíu stóðust ekki álagsprófið og hefur það vakið spurningar um hvort prófið hafi verið of léttvægt.
Af þeim 8 sem stóðust ekki próf voru fimm spænskir, tveir grískir og
einn austurrískur. Álagsprófin eiga að kanna stöðu bankanna til að
tryggja að bankarnir hafi nægilegan höfuðstól til að standast erfiðar
efnahagssveiflur.
Meðal banka sem komu best út eru spænsku bankarnir BBVA og Santander og ítalski bankinn Intesa Sanpaolo.