Alls var 446 kaupsamningum um fasteignir þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Heildarvelta nam 12,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27 milljónir króna.
Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 8,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,3 milljörðum króna.
Veltan eykst um 58,7% milli ára
Þegar júlí 2011 er borinn saman við júní 2011 fjölgar kaupsamningum um 19,9% og velta eykst um 13,8%. Í júní 2011 var 372 kaupsamningum þinglýst, velta nam 10,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,5 milljónir króna. Þegar júlí 2011 er borinn saman við júlí 2010 fjölgar kaupsamningum um 58,7% og velta eykst um 58,8%.
Í júlí 2010 var 281 kaupsamningi þinglýst, velta nam 7,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 22 í júlí 2011 eða 5,2% af öllum samningum. Í júní 2011 voru makaskiptasamningar 19 eða 5,4% af öllum samningum. Í júlí 2010 voru makaskiptasamningar 50 eða 18,9% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign.
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í júlí 2011 var 36. Þar af voru 18 samningar um eignir í fjölbýli og 18 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 728 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 14 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 241 milljón króna og meðalupphæð á samning 17,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 9 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 174 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,3 milljónir króna.
Á sama tíma var 15 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 10 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 334 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,2 milljónir króna.