Hlutabréf lækkuðu mikið í verði í kauphöllinni á Wall Street í kvöld líkt og í kauphöllum í Evrópu í dag.
Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,3% eða 511 stig og er 11.384 stig. Nasdaq vísitalan lækkaði um 5,1% og er 2556 stig.
Fjárfestar óttast, að nýtt samdráttarskeið sé yfirvofandi vegna skuldakreppu í Bandaríkjunum og Evrópuríkjum.