Gunnar Andersen, forstjóri FME, segir um gagnrýni á stjórnarsetu hans í tveimur aflandsfélögum Landsbankans 2001-2002 að stigs- og eðlismunur sé á gerendum og áhorfendum í öllum málum.
„Það fer svo eftir eðli hvers máls og hverju sinni hvort menn teljast gerendur eða ekki.“
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að í athugun, sem gerð var fyrir stjórn Fjármálaeftirlitsins á atriðum er vörðuðu hæfi Gunnars Andersen, forstjóra FME, kemur fram að Gunnar telur sig hafa verið óvirkan stjórnarmann í félögunum tveimur.