Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað mikið í dag og eins lækkuðu hlutabréf mikið í Evrópu í dag.
Á NYMEX-olíumarkaðnum í New York hefur verð á hráolíu lækkað um 2,85 Bandaríkjadali tunnan eða 3,30%. Kostar tunnan á hráolíu til afhendingar í október 83,60 dali.
Í Lundúnum hefur verð á Brent-Norðursjávarolíu lækkað um 2,59% eða 2,92 dali tunnan. Kostar tunnan nú 110,03 dali.