Vöruskiptin áfram hagstæð

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,9 milljarða króna og inn fyrir 42,1 milljarð króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,8 milljarða króna. Í júlí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 4,2 milljarða króna á sama gengi að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Lakari en í fyrra

Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 339,9 milljarða króna en inn fyrir 285,9 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54 milljörðum en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin hagstæð um 67,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 13,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Verðmæti sjávarútvegs eykst milli ára

Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 27,6 milljörðum eða 8,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,6% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 41,5 milljörðum eða 17% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og flutningatækjum en einnig varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvörum og neysluvörum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK