Mikill halli á rekstri hins opinbera

Tekjuhalli hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga,  var 155 milljarðar króna á síðasta ári eða rúmlega 10% af landsframleiðslu, sem er svipaður halli og árið 2009.

Hagstofan segir, að þessi óhagstæða niðurstaða skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í tekjum hins opinbera vegna 11% samdráttar í landsframleiðslu árin 2009-2010.

Heildartekjur hins opinbera námu 637 milljörðum króna árið 2010 og jukust um 23 milljarða króna milli ára eða 3,7%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 41,5% árið 2010 samanborið við 41,0% árið 2009, 44,1% árið 2008 og 47,9% árið 2007.

Útgjöld hins opinbera reyndust um 792 milljarðar króna 2010 og jukust einnig um 3,7% eða um 28,6 milljarða króna milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu hækkuðu þau úr 51,0% árið 2009 í 51,5% 2010.

Útgjöld til heilbrigðismála voru 142,6 milljarðar króna árið 2010, eða 9,3% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 114,6 milljarðar króna en hlutur heimila um 28 milljarðar eða 19,6%. Á mann námu heilbrigðisútgjöld hins opinbera 360 þúsund krónum og lækkuðu um 24 þúsund krónur frá 2009.

Til fræðslumála var ráðstafað 128,2 milljörðum króna árið 2010, eða 8,3% af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera 116,7 milljarðar króna og hlutur heimila 11,5 milljarðar króna, eða 9%. Á mann námu fræðsluútgjöld hins opinbera 367 þúsund krónum og lækkuðu um rúmlega 13 þúsund krónur frá 2009.

Til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera 172 milljörðum króna 2010, eða 11,2% af landsframleiðslu en það svarar til 541 þúsund króna á mann.

Af heildarútgjöldum hins opinbera 2010 runnu 15,3% til heilbrigðismála, 16,2% til fræðslumála og 21,7% til velferðarmála, eða 53,2% af útgjöldum þess, en það svarar til 27,4% af landsframleiðslu. 

Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 741 milljarð króna í árslok 2010, eða sem svarar 48,2% af landsframleiðslu. Hún versnaði um 144 milljarða króna milli ára eða 8,3% af landsframleiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK