Hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja nam samtals tæplega 42,7 milljörðum króna á fyrri hluta ársins.
Hagnaður Landsbankans var 24,4 milljarðar króna, hagnaður Arion banka nam 10,2 milljörðum króna og hagnaður Íslandsbanka tæplega 8,1 milljarði króna.
Á sama tímabili á síðasta ári var samanlagður hagnaður bankanna þriggja 25,6 milljarðar króna. Hagnaður Landsbanka var 9,4 milljarðar, Arion banka 7,9 milljarðar og Íslandsbanka 8,3 milljarðar.