Kostnaður Íslands væri kominn upp í 40 milljarða króna, hefði síðasta Icesave-samkomulag verið samþykkt.
Ekki er enn byrjað að greiða úr þrotabúi Landsbankans, en áætlanir höfðu gert ráð fyrir því að það yrði í síðastliðnum júní.
Í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur fram, að á fyrstu átta mánuðum ársins hefðu áfallnir vextir, samkvæmt samningnum, numið um 14 milljörðum króna, en á árinu 2010 hefði þurft að greiða 26 milljarða.