Á hluthafafundi í Exista sem haldinn var í dag var ákveðið að breyta nafni félagsins og heitir það nú Klakki ehf.
Með nafnbreytingunni er nýtt eignarhald og hlutverk félagsins undirstrikað, segir í tilkynningu.
„Eftir nauðasamninga sem kröfuhafar félagsins samþykktu á síðasta ári er Klakki nú nær alfarið í eigu íslenskra og erlendra fjármálastofnana og lífeyrissjóða. Jafnframt hafa verkefni félagsins breyst og er sjónum nú einvörðungu beint að stýringu á núverandi eignasafni Klakka. Helstu eignir félagsins eru Skipti hf. (móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins),Vátryggingafélag Íslands hf., Líftryggingafélag Íslands hf. og Lýsing hf.,“ segir í tilkynningu.