Endurskoða evrubjörgunaráætlun

Þýskaland og nokkur önnur auðug ríki vilja láta endurskoða björgunaráætlun, sem evrusvæðið hefur unnið eftir til að fást við skuldakreppuna. Í því felst, að stærri hluti skulda Grikklands verði afskrifaður en áður var miðað við og að stofnaður verði öflugur tryggingasjóður.

Breska blaðið Daily Telegraph segir á vef sínum í kvöld, undir fyrirsögninni: 1,76 billjóna punda samkomulag um að bjarga evrunni, að um sé að ræða þríþætt samkomulag þar sem í fyrsta lagi verði stofnaður sjóður til að mynda einskonar eldvegg utan um þau hagkerfi sem skulda best, í öðru lagi að afskrifaður verði að minnsta kosti hluti skulda Grikkja  og þeim evrópsku bönkum, sem verst standa, verði komið til hjálpar.  

Segir blaðið að þýskir og franskir embættismenn hafi samið þessa áætlun, sem er sögð miða að því að binda enda á skuldakreppuna á evrusvæðinu áður en hún verður óviðráðanleg og dregur allt hagkerfi heimsins niður með sér.

Áhyggjur af skuldastöðu Grikklands hafa farið vaxandi á ný að undanförnu og haft áhrif á fjármálamarkaði um allan heim. Þá er óttast að skuldakreppan breiðist út til stærri hagkerfa á borð við Ítalíu og Spánar.

„Vegna þessa er mikilvægt, að við finnum varanlega og sannfærandi lausn fyrir Grikkland," sagði Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, við blaðamenn í Washington í kvöld.

Ársfundir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans eru nú í Washington og þar hefur verið þrýst á forusturíki evrusvæðisins að finna skjóta og varanlega lausn á skuldakreppunni en hætta er talin á að ella sé framundan samdráttarskeið í hagkerfi heimsins.

Leiðtogar evruríkjanna hafa undanfarnar vikur lagt áherslu á, að niðurstaða hafi fengist á leiðtogafundi í júlí þar sem ákveðið var að grípa til ýmissa ráðstafana, þar á meðal að koma Grikkjum á ný til aðstoðar.

En Schäuble og aðrir evrópskir embættismenn gáfu til kynna, að á bak við tjöldin sé nú verið að undirbúa grundvallarbreytingu á aðgerðunum.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK