Eyrir Invest ehf. hefur keypt eigin skuldabréf í að nafnvirði 325 milljónir króna. Þá hefur félagið tekið bankalán hjá MP Banka að andvirði 500 milljóna króna með veði í hlutabréfum.
Lánið er verðtryggt og ber breytilega vexti, nú 5,70%. Lánið er til 5 ára með vaxtagreiðslum á 6 mánaða fresti. Lokagjalddagi er í nóvember 2016.
Lántakan og uppgreiðslan skuldabréfanna er hluti af lána- og lausafjárstýringu Eyris Invest, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.