Veik efnahagsstaða iðnríkjanna er farin að hafa áhrif á þróunarlöndin, sagði Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á fundi G20-ríkjanna í París í dag. Vöxtur þróunarlandanna hafi áður komið í veg fyrir að mörg iðnríkjanna færu verr út úr heimskreppunni en þau gerðu.
Efnahagshorfur hafa farið versnandi undanfarnar vikur og segir Lagarde það byrjað að koma fram í þróunarlöndunum. „Aðalatriðið er að ástandið hefur versnað undanfarnar þrjár vikur í stað þess að batna,“ sagði Lagarde. „Við höfum heyrt frá þróunarlöndunum að þau óttist að það muni bitna á þeim.“
Lagarde sagði það nauðsynlegt að AGS hefði úrræði til að „mæta þörfum meðlima sinna á fullnægjandi hátt“ en hún útskýrði ekki nánar hvað hún ætti við. AGS myndi leggja fram ítarlega tillögu á G20 fundi í Cannes þann 3. og 4. nóvember, um hvernig hægt væri að hjálpa löndum sem kreppan bitnaði á þrátt fyrir að þau stæðu efnahagslega vel.