Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur og tölvunarfræðingur, hefur verið ráðin til Seðlabanka Íslands sem framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.
Sigríður lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í tölvunarfræðum frá sama skóla 1998. Sigríður lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla í maí 2005.
Frá 2007 hefur Sigríður starfað sem kennari og aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Samhliða því hefur hún stundað rannsóknir á sviði fjármálahagfræði, með áherslur á fjármálamarkaði. Hún starfaði sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Bandaríkjanna á árunum 2005-2007 og sem verkefnisstjóri og ráðgjafi hjá Hugviti hf. 1997-1998. Á árunum 1995-1997 var Sigríður hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og var sumarstarfsmaður hjá Seðlabanka Íslands 1992,1993 og 1995. Sigríður var skipuð í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið árið 2008.
Seðlabankinn segir, að við ákvörðun um ráðningu hafi verið litið til reynslu og þekkingar Sigríðar á sviði fjármála og hagfræði, bæði á fræðasviðinu og úr starfi, auk víðtækrar þekkingar sem hún Sigríður hafi aflað sér með starfi í rannsóknarnefnd Alþingis.
Fjármálastöðugleiki er nýtt svið innan Seðlabanka Íslands en núverandi fjármálasviði hefur verið skipt upp í tvær einingar, fjármálstöðugleika og greiðslukerfi. Meginviðfangsefni sviðsins felast í greiningu á áhættu í fjármálakerfinu og þátttöku í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið. Sviðið tekur þátt í stefnumótun varðandi uppbyggingu fjármálakerfisins og varðandi markmið, tæki og skipulag fjármálastöðuleika á Íslandi.