Ekki er útlit fyrir að matsfyrirtækið Fitch Ratings komi til með að hækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands úr spákaupmennskuflokki næsta kastið samkvæmt viðtali Bloomberg fréttaveitunnar við Paul Rawkins nú í morgun sem starfar í greiningarteymi Fitch í Lundúnum.
Er hér átt við lánshæfiseinkunn sem ríkissjóður Íslands er með hjá fyrirtækinu fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem er BB+. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt er þremur þrepum hærri, þ.e. BBB+, og þar með í fjárfestingarflokki, samkvæmt Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
„Að sögn Rawkins skiptir það ekki máli að markaðurinn með skuldaafleiður meti vanskilaáhættu Ríkissjóð Íslands minni en hún er að meðaltali á ríkjum evrusvæðisins. Er hér verið að vitna í skuldatryggingarálag ríkissjóðs sem hefur að undanförnu verið lægra en það hefur að meðaltali verið á ríkjum evrusvæðisins. Jafnframt telur Rawkins það ekki nægjanlega forsendu fyrir hækkun á lánshæfiseinkunn að hagvöxtur sé hér meiri, viðskiptihalli minni og atvinnuleysi minna en það hefur að jafnaði verið í ríkjum evrusvæðisins.
Að sögn Rawkins mun einkunn ríkissjóðs ekki fara upp úr spákaupmennskuflokk fyrr en sýnt hefur verið fram á að hægt sé að bæta skuldastöðu einkageirans og aflétta þeim gjaldeyrishöftum sem hér hafa verið um þriggja ára skeið. Jafnframt tekur Rawkins fram að næsta skref í bættu lánshæfismati á ríkissjóð Íslands yrði fremur að horfum yrði breytt úr neikvæðum í jákvæðar, áður en farið verður í að hækka lánshæfiseinkunn," segir í Morgunkorni.
Grikkir eina evru-ríkið sem er lægra mat en Ísland
Af ríkjum evrusvæðisins er aðeins Grikkland með verra lánshæfismat en Ísland hjá matsfyrirtækinu Fitch. Jafnframt er ekkert annað ríki á evrusvæðinu fyrir utan Grikkland með einkunn í spákaupmennskuflokki. Þó er Portúgal ekki langt frá því að detta í þann flokk en einkunnir Portúgals fyrir langtímaskuldbindingar standa nú í BBB- auk þess sem þær eru til athugunar með neikvæðum vísbendingum.
Af öðrum evruríkjum sem verið hafa í kastljósinu að undanförnu vegna skuldavandræða má nefna Írland (BBB+/neikvæðar horfur), Ítalíu (AA-/stöðugar horfur) og svo Spán (AA+/neikvæðar horfur) svo einhver séu nefnd. Skuldatryggingarálag á öll þessi ríki hefur verið mun hærra en á hið íslenska og er ljóst að verulegt ósamræmi er á milli sjónarmið markaðarins og lánshæfismatsfyrirtækjanna á lánsáhættu ríkissjóðs Íslands í samanburði við skuldug evruríki.