Hlutabréf hafa hækkað mikið í helstu kauphöllum Evrópu en fjárfestar hafa fyllst bjartsýni eftir að leiðtogar Evrópusambandsríkja náðu í nótt samkomulagi um aðgerðir vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu.
Þýska Dax hlutabréfavísitalan hækkaði þannig um 3,43% við opnun í morgun en það voru einkum hlutabréf banka sem hækkuðu. CAC vísitalan í Frakklandi hefur hækkað um 3,6% og FTSE vísitalan í Lundúnum um 2,1%.
Í Aþenu hækkaði vísitala um nærri 4,8 þegar kauphöllin þar var opnuð í morgun.