Már Guðmundsson segir að mælikvarðar Seðlabankans á verðbólguvæntingar séu ónákvæmir um þessar mundir en bendir hinsvegar á að þetta séu einu mælikvarðanir sem bankinn hefur til þessað meta væntingar um verðbólgu.
Þetta kom fram í erindi Más Guðmundssonar á morgunfundi Viðskiptaráðs um efnahagshorfurnar. Eins og fram kom í viðskiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudag þá hefur komið fram gagnrýni á áherslu Seðlabankans á mælingar verðbólguvæntingar. Gísli Hauksson, hagfræðingur hjá GAM Management, hefur til að mynda varað við því að lesið sé of mikið í verðbólguálag á skuldabréfamarkaðnum vegna óskilvirkni þess markaðar auk annarra markaðsbresta.
Már tók undir þessa gagnrýni í erindi í sínu og sagði markaðbresti á skuldabréfamarkaði skekkja skilaboð hans um verðbólguvæntingar. Auk þess sagði hann að aðrir mælikvarðar Seðlabankans á verðbólguvæntingar kunni að vera ófullkomnir. Hinsvegar tók hann það fram að bankinn hefði ekki önnur ráð til að mæla væntingar um þróun verðlags.
Már réttlætti í ræðu sinni vaxtahækkun Seðlabankans á miðvikudag og benti meðal annars á að í ýmsum samanburði séu stýrivextir ekki háir hér á landi. Auk þess sagði hann að ef bankinn myndi fylgja Taylor-reglunni svokölluðu út í ystu æsar þyrfti vaxtastigið að vera mun hærra.