Framtakssjóður Íslands hefur falið Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. að hafa umsjón með sölu á 10% hlutafjár í Icelandair Group. Hlutaféð er boðið til sölu til fagfjárfesta með áskriftarfyrirkomulagi.
Fram kemur í tilkynningu að lágmarksverð sé kr. 5,42 á hlut sem sé dagslokagengi á síðasta viðskiptadegi, föstudaginn 4. nóvember. Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 18 í dag.