HS Orka tapaði 1.686 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við hagnað upp á 3.635 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.
Á fyrstu níu mánuðum ársins nam tap HS Orku 932 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður HS Orku 1.238 milljónum króna.
Magma Energy á 75% hlut í HS Orku en samlagshlutafélagið Jarðvarmi á 25% hlut. Jarðvarmi er í eigu 14 lífeyrissjóða.