Viðræður við einn kaupanda Jarðborana

Einn af jarðborum Jarðborana
Einn af jarðborum Jarðborana www.jardboranir.is

Miðengi, eignarhaldsfélag í eigu Íslandsbanka, á nú í viðræðum við einn íslenskan aðila, sem ekki er gefinn upp, um kaup á öllu hlutafé í Jarðborunum hf. Fimm skuldbindandi tilboð bárust en þegar söluferlið hófst 11. ágúst sl. bárust 17 óskuldbindandi tilboð.

Tilboðin 17 í fyrstu umferð söluferlisins voru frá dreifðum hópi innlendra og erlendra tilboðsgjafa. Stjórn Miðengis ákvað að hleypa sex aðilum áfram í aðra umferð söluferlisins þar sem tilboðsgjafar fengu aðgang að frekari upplýsingum um félagið, sem og kynningu með stjórnendum þess. Í lok október bárust fimm skuldbindandi tilboð í eignarhlutinn. Miðengi hefur nú hafið formlegar viðræður við íslenskan aðila sem átti hagstæðasta tilboðið, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

„Ferlinu er ekki lokið þar sem ekki hefur verið gengið að tilboðinu. Þá á einnig eftir staðfesta áreiðanleika upplýsinga í kostgæfniathugunum sem framkvæmdar hafa verið. Stefnt er að því að ljúka ferlinu fyrir n.k. áramót en þar sem enn á eftir að ganga frá ýmsum veigamiklum atriðum er ekki útilokað að aðrir tilboðsgjafar komi aftur að söluferlinu áður en yfir lýkur," segir einnig í tilkynningu Miðengis.

Eftir að hafa verið í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar voru Jarðboranir skráðar í Kauphöllina árið 1993 og urðu hluthafar flestir um 1.500 talsins. Í upphafi ársins 2006 keypti fjárfestingafélagið Atorka Group allt hlutafé í Jarðborunum og átti þar til 1. ágúst 2007 að Geysir Green Energy eignaðist félagið. Miðengi ehf. tók við öllu hlutafé í Jarðborunum í janúar 2011.

Jarðboranir hf. hafa tekið þátt í mörgum verkefnum á erlendri grundu síðustu 15 árin við nýtingu auðlinda í jörð, svo sem öflun á heitu vatni, gufu og neysluvatni, m.a í Færeyjum, á Azoreyjum, Englandi, Írlandi, Þýskalandi, Sviss og Ungverjalandi, að því er segir á vef fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK