Seðlabankinn hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 16 í dag. Segir í tilkynningu frá bankanum að tilefnið verði nánar tilgreint síðar.
UPPFÆRT Kl 13:02
Á blaðamannafundinum verður fjallað um næstu skref í afnámi gjaldeyrishafta. Seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri og fjórir sérfræðingar bankans munu kynna efnið og vera til svara.