Starfsfólki Arionbanka var heimilt að taka þátt í útboði bankans á 30% hlut í Högum, fyrstu tvo daga útboðsins sem fór fram 5. – 8. desember.
Verðbréfaviðskipti starfsmanna Arionbanka eru háð samþykki regluvarðar bankans.
Í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir, að endurútreikningur sem birtur var degi eftir að útboði lauk, leiddi í ljós umtalsvert betri fjárhagsstöðu Haga en áður var talið. Ekkert hafði verið minnst á endurútreikning í útboðslýsingu.