Evran féll í dag og hefur ekki verið lægri síðan í janúar. Fregnir um óstöðugleika á Ítalíu eru taldar aðalástæða þessa.
Evran var stöðug í morgun og fram eftir degi, en tók síðan skarpa dýfu þegar markaðir í Bandaríkjunum opnuðu.
Einnig féll breska pundið nokkuð í dag.