Litlar breytingar hafa verið á gengi evrunnar í morgun en fjárfestar bíða í eftirvæntingu eftir fundi Seðlabanka Evrópu síðar í dag og skuldabréfaútboði spænska ríkisins og þess ítalska.
Viðskipti voru með evruna á genginu 1,2717 Bandaríkjadalir í morgun og 97,75 jen. Í gærkvöldi var evran skráð á 1,2707 dali og 97,70 jen. Gengi Bandaríkjadals hefur nánast ekkert breyst gagnvart jeni.