Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir í kjölfar lækkunar lánshæfis margra Evrópusambandslanda að Evrópa eigi enn langt í land með að endurreisa traust fjárfesta.
„Ákvörðunin staðfestir þá sannfæringu mína að við eigum enn langt í land í Evrópu, þar til traust fjárfesta hefur verið endurreist. En það er líka ljóst að við þurfum að ganga þennan veg ákveðin,“ sagði Merkel.